Fílar eru plöntuætur. Það sem þeir borða eru lauf, blóm, börkur, smágreinar o.fl. 30-60% af fæðu fíls er safaríkt gras sem vex upp úr fenjalöndum. Þeir éta meira en 100 tegundir plantna. Fílar nota skilningarvitin fimm til þess að kanna umhverfið. Þau eru heyrn, sjón, lyktarskyn, snertiskyn og bragðskyn. Fyrir fíla er lyktarskynið mikilvægast því þeir reiða sig á það meira en nokkuð annað. Fílar finna lykt í gegnum ranann og nota hann sem stefnuvísi. Raninn er líka mjög næmur fyrir snertingu því það eru stutt hár á honum sem efla skynjun fílsins. Raninn er líka notaður til þess að kanna fæðu, vatn og margt fleira.
Fílar nota aðallega hljóð til boðskipta innbyrðis. Þeir reka upp drynjandi hljóð og þessi hljóð eru flest lægri en mannseyrað getur greint. Snerting er líka mikilvæg fyrir þá í boðskiptum. Þegar fílar hittast á förnum vegi stinga þeir rananum upp í munninn á hvorum öðrum.
Þegar fílar reyna að greina fjarlægt hljóð blaka þeir eyrunum. Þetta gera þeir til þess að reyna átta sig á tilteknu hljóði. Fílar hafa vel þróað heyrnarskyn og heyra dyn frá öðrum fílum í allt að 8 km fjarlægð. Þegar fílstarfar blaka eyrunum dreifa þeir líka sérstökum þef til þess að láta aðra fíla vita af sér. Eyra afríkufíls er á stærð við rúmlak og getur verið svipað og maður á þyngd.