Hæð afríkufíls er um 3-4m en þyngd þeirra er um 4-7 tonn. Asíufíll er hins vegar um 3,5m á hæð en hann er töluvert léttari eða um 2-5 tonn. Í rananum eru um 100.000 vöðvar. Fullorðinn afríkufíll getur lyft allt að 250 kg með rananum. Á karlkyns afríkufíl geta skögultennurnar orðið 348 cm að lengd og yfir 100 kg að þyngd hvert. Fílshúð er um 2,5 cm þykk á hryggnum og sum staðar á höfðinu. En annar staðar t.d. í kringum munninn, er húðin þunn. Fíll fær lit sinn frá gráu litarefni í húðinni. Með aldrinum fölnar liturinn og verður bleikur. Munurinn á asíu og afríkufíl er sá að t.d. afríkufílar eru með stærri eyru. Karlkyns afríkufílar eru þyngri og með hrukkóttari húð heldur en asífílstarfar. Hæsti punktur á asíufíl er á bakinu en hjá afríkufíl er það á öxlinni.