Afríkufílar lifa á mjög stóru svæði yfir mið- og suður- Afríku. Um árið 300 e.kr urðu fílar aldauðir í N- Afríku. Asíufílar lifa uppi í miklum hæðum. Þeir lifa í Sri Lanka, SA- Asíu, Malasíu, Indónesíu o.fl löndum. Fyrr á tíð fóru þeir að breiða sér um víða Asíu. Fólk hefur verið að veiða fíla í árþúsundir vegna fílakjöts og beina. Menn hafa m.a. veitt fíla til þess að nota þá í t.d. í orrustum, bera byrðir og draga þunga trjástofna úr skóginum. Líkamshlutar dauðra fíla eru notaðir samkvæmt þjóðlegri kínverskri hefð til lækninga og augað er t.d. notað til þess að lækna augnsjúkdóma. Dýr sem lifa í kringum afríkufíla er t.d. ljón, hýenur, gíraffar, sebrahestar, blettatígar og hlébarðar. En tígrisdýr, villtir hundar, hjartardýr, nashyrningar og indverskir villtir uxar lifa í kringum asíufíla.
Daglegt líf fíls er að borða, sofa og ferðast til að afla sér matar. Samskipti við aðra fíla gegna gildi hlutverki á hverjum degi og trufla athafnir öðru hverju. Það sem tekur mesta tímann er fæðuöflun eða um 16 klst. á sólarhring. En fílar þurfa einnig að liggja í vatni og drekka mikið, tvisvar eða einu sinni á dag. Á sólarhring sofa fílar tvisvar, um hádegi og snemma morguns.